ISNIC
Internet á Íslandi hf.
Tæknigarði, Dunhaga 5
Reykjavík
ICELAND






    Umsókn um skráningu þjónustuaðila

    Útg. 3.0


    1.0. Umsækjandi

    
    Nafn          ____________________________________
    
    Kennitala     ____________________________________
    
    Heimilisfang  ____________________________________
    
            __________________________________________
    
            __________________________________________
    
            __________________________________________
    
    Netfang       ____________________________________
    
    Sími           ______________ FAX ________________
    
    




    hér á eftir "þjónustuaðili", sækir um skráningu á vef ISNIC sem þjónustuaðili. með þeim réttindum og skyldum sem því fylgja og fara hér á eftir.



    2.0. Verksvið þjónustuaðila

    2.1. Þjónustuaðili hefur milligöngu um skráningu léna fyrir innlenda aðila í samræmi við úthlutunarreglur ISNIC hverju sinni.

    2.2. Þjónustuaðili skal koma fram gagnvart ISNIC sem tæknilegur tengiliður léna sem vistuð eru hjá þjónustuaðila. Þjónustuaðili sér um og rekur a.m.k. tvo nafnaþjóna sem vísað er til við vistun á lénum hjá þjónustuaðila. Nafnaþjónar þjónustuaðila skulu vera undir stjórn hans og skal tæknilegur tengiliður nafnaþjóna (eins og þeir eru skráðir hjá ISNIC) vera viðkomandi þjónustuaðili.

    Þjónustuaðili skuldbindur sig til:

      a) að vista lén skv. tæknilegum kröfum sem ISNIC setur hverju sinni fyrir lén sem skráð eru undir .is

      b) að bæta án tafar úr tæknilegum annmörkum við uppsetningu nafnaþjóna og léna komi slíkt upp síðar.

      c) að verða fljótt og örugglega við beiðnum ISNIC um að fjarlægja lén sem flutt hafa verið í vistun annars staðar.

      d) að tryggja rekstraröryggi og aðgengi nafnaþjóna sinna, ásamt uppsetningu þeirra skv viðeigandi RFC stöðlum.

      e) að vista að minnsta kosti 10 mismunandi .is lén á hverjum tíma.

    2.3. Þjónustuaðili skal vera skráður sérstaklega á vef ISNIC sem vistunaraðili.

    2.4. Skráning á heimasíðu ISNIC:

    
     Nafn............: _________________________________________________
    
     Heimilisfang....: _________________________________________________
    
     Póstnúmer.......: _________________________________________________
    
     Bær.............: _________________________________________________
    
     Sími............: _________________________________________________
    
     Fax.............: _________________________________________________
    
     Heimasíða.......: _________________________________________________
    
     Netfang.........: _________________________________________________
    
    

    2.5. Vegna innri vinnslu milli ISNIC og þjónustuaðila þarf að skrá tengiliði og gefa upp auðkenni þeirra hér að neðan:

    
     Stjórnunarlegur.(NIC-HDL).: _______________________________________
    
     Tæknilegur......(NIC-HDL).: _______________________________________
    
     Greiðandi.......(NIC-HDL).: _______________________________________
    
    

    Mánaðarleg skýrsla er send til þjónustuaðila um lén sem vistuð eru hjá honum, ásamt stöðu þeirra

     Netfang v/skýrslusendinga.: _______________________________________
    
    

    Tveir eða fleiri nafnaþjónar: (Undir stjórn þjónustuaðila)

    
     Nafnaþjónn......: _________________________________________________
    
     Nafnaþjónn......: _________________________________________________
    
     Nafnaþjónn......: _________________________________________________
    
     Nafnaþjónn......: _________________________________________________
    


    3.0. Aðgengi þjónustuaðila

    3.1. Þjónustuaðli notar aðgang sinn að vef ISNIC til að hafa umsjón með lénum sem vistuð eru hjá honum. Þjónustuaðli tengist þessu svæði á notendanafni tæknilegs tengiliðar nafnaþjóna.

    4.0. Þjónustugjald

    4.1. Þjónustuaðili skal greiða ISNIC sérstakt gjald í samræmi við gjaldskrá ISNIC hverju sinni.

    5.0. Leynd og framsal

    5.1. Allar upplýsingar sem tengjast umsókn þessari skulu skoðast sem trúnaðarmál. Með öllu er óheimilt að upplýsa þriðja aðila um málefni, sem stafa frá samningi þessum, nema með skriflegu leyfi gagnaðila.

    5.2. Óheimilt er að framselja réttindi þau sem fengin eru með skráningu þjónustuaðila, nema með skriflegu samþykki gagnaðila.



    6.0. Gildistími

    6.1. Þjónustuaðli getur sagt upp stöðu sinni hvenær sem er. Skráningargjald þjónustuaðlia er ekki endurgreitt. Uppsögn þarf að vera skrifleg.

    6.2. Uppfylli þjónustuaðili ekki lengur skilyrði skráningar, og hafi ekki bætt úr innan 30 daga frá því að ISNIC sendir tilkynningu þar að lútandi, áskilur ISNIC sér rétt til að afskrá þjónustuaðila án frekari viðvarana.

    6.3. Fari fjöldi léna sem vistuð eru hjá þjónustuaðila niður fyrir 10 verður þjónustuaðili afskráður sjálfkrafa.





    
    Þjónustuaðili
    
    
    
    __________________________________________
    Undirskrift löglegs fulltrúa þjónustuaðila
    
    
    
    __________________________________________________________
    Nafn                                 Kennitala 
    
    
    

    Sendið útfyllta umsókn ásamt fylgiritum á fax # 578-2031 eða í tölvupósti til isnic@isnic.is.