Umsóknir og eyðublöð
Umsóknir og eyðublöð vegna breytinga á upplýsingum í rétthafaskrá
Þegar ekki er hægt að breyta upplýsingum í rétthafaskrá ISNIC á hefðbundinn rafrænan hátt, má fara fram á að ISNIC geri ákveðnar takmarkaðar breytingar með því að fylla út neðangreind eyðublöð og senda ISNIC í faxi eða pósti. ISNIC tekur á móti þessum eyðublöðum á rafrænan máta og má senda sem PDF, TIFF eða JPG skjal til okkar.
Breyting á netfangi tengiliðs Þessa breytingu getur tengiliður framkvæmt
sjálfur á vef ISNIC hafi hann aðgang að skráðu netfangi eða hafi lykilorð NIC auðkennis síns.
Breyting á tengilið léns Þetta getur núverandi tengiliður rétthafa
gert á vef ISNIC ef í hann næst.
Breyting á nafnaþjónum léns (flutningur) Þetta geta bæði tengiliður rétthafa og tæknilegur
tengiliður gert á vef ISNIC, endurgjaldslaust. Sé þessi breyting framkvæmd af starfsfólki ISNIC skv.
þessu eyðublaði, er flutningsgjald gjaldfært á lénið.
Beiðni um læsingu léns Vegna ágreinings um lén. Reglur ISNIC um læsingu léna












