21. des. 2023

21. des. 2023

Árás á vef ISNIC

Stór DDoS árás var gerð á vefþjóna ISNIC í nótt og hafði það áhrif á vef, EPP, WHOIS og RDAP þjónustur. Sem fyrr varð grunnþjónustan við .is (DNS-þjónustunan) ekki fyrir áhrifum.

Fyrst varð vart við árásina kl. 01:45 og var bakvakt fljótlega byrjuð að greina vandamálin.

Ekki tókst að verjast árásinni að fullu fyrr en kl. 07:33 í morgun og voru þá allar þjónustur uppi og svöruðu venjulega.

Verið er að greina árásina og finna leiðir til að herða okkar kerfi til að verjast slíkum árásum betur í framtíðinni.

Uppfærð frétt 22.12.: Vefur ISNIC varð fyrir samskonar árás í nótt, sem varði með hléum fram undir morgun. Mikilvægt er að skilja að grunnþjónusta ISNIC (DNS-þjónustan) er óháð vefþjónustunni sem viðskiptamenn nálgast á léninu isnic.is. Takk fyrir skilninginn og afsakið raskið.
Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin