Fjöldi skráðra tækja undir höfuðléni .IS ( 1. maí 2011)

RIPE samtökin gangast fyrir mánaðarlegri talningu á vélum sem skráðar eru í þjóðarlén innan þjónustusvæðis síns (Evrópa, Norður-Afríka og víðar). Hér á Íslandi er það Internet á Íslandi hf. sem sér um þessa talningu og eru almennar niðurstöður hennar birtar formlega hjá RIPE. Sjáið sérstaklega samanburð á útbreiðslu netsis í hinum ýmsu löndum Evrópu ("Latest Hostcount Statistics"), ásamt öðrum nánari upplýsingum um niðurstöður talningar í hverjum mánuði. Hér á eftir eru nánari upplýsingar um .IS lénið sem unnar eru úr þessari talningu.

Íslenskir netþjónustuaðilar hafa tekið í notkun samtals u.þ.b. 692736 IPv4-vistföng af þeim sem til þeirra hefur verið úthlutað, eða um 2.18 tölur á hvern íbúa landsins. Af þessum eru 289812 tæki skráð í DNS. Þar með má segja að um 1.10 íslendingar séu um hverja nettengda tölvu.

Íslenskir netþjónustuaðilar hafa fengið úthlutað samtals 554598346525669977783982358528 IPv6-vistföngum eða um það bil 1.74 yotta vistfangi á hvern íbúa landsins.

Sjá lista yfir íslensk AS númer og tilsvarandi IP tölur hjá RIX.

Talning nettengdra tölva á Íslandi

Í síðustu lénatalningu var reynt að telja tölvur í 27234 lénum. Þar af tókst talning í 22263 lénum og í þeim fundust samtals 642939 færslur.

Þær skiptust svona:

FjöldiTegund færslu
383282A
115361 NS
44922MX
43707CNAME
44526SOA
436HINFO
9420TXT
499LOC
234SRV
15RP
30PTR
74AAAA

Samtals 357033 tæki skráð, þar af 67221 tvítalið, (þ.e. í fleiri en einu léni eða sama tækið skráð oftar en einu sinni). Heildarfjöldi skráðra véla er þvi 289812

Lénin flokkuð í stærðarflokka:

FjöldiFlokkur
11072 tóm lén (ekkert tæki skráð)
10593 lítil lén (1-10 tæki skráð)
492miðlungs (11-100)
79 stór (101-1000)
27 mjög stór (>1001)

Eftirfarandi lén höfðu flestar tölvur innan sinna vébanda við síðustu mælingu. Athugið að þetta segir lítið um "stærðir" viðkomandi fyrirtækja. Ýmsar útfærslur eru mögulegar sem breyta þessum mælingum. Hægt er að forskrá fjölda tækja sem þá teljast með án þess að vera í raun í notkun, og í mörgum tilfellum eru stór innri net fyrirtækja sýnileg sem örfáar skráðar IP tölur.

Tækjafjöldi Lén
78917simnet.is
71019xdsl.is
46075hive.is
13850hi.is
8889in.is
8414hysing.is
6226mmedia.is
4122skyrr.is
3078heimsnet.is
2984isafjordur.is
2493basis.is
2387islandia.is
2190vortex.is
1954fsnet.is
1757nwc.is
1639skima.is
1621snerpa.is
1545isholf.is
1270plusnet.is
1022unak.is
965bifrost.is
797nh.is
789mbl.is
762talnet.is
747itn.is
722lhi.is
681eyjar.is
627linanet.is
587aknet.is
567hafro.is

Þróun fjölda nettengdra tækja á Íslandi frá upphafi

À myndinni hér að neðan sést þróun í fjölda nettengdra tækja sem talinn hafa verið innan .IS lénsins frá því að slíkar talningar hófust. Fyrsta opinbera talningin á vegum RIPE í Evrópu var í október 1990 og þá voru 14 tölvur skráðar á Íslandi. Þarna er einnig tilraun til að spá fyrir um þróun fjölda nettengdra tölva á Íslandi næstu árin.

Mynd: Fjöldi tækja innan .is frá upphafi



Internet á Íslandi hf / Maríus Ólafsson
isnic@isnic.is