Jan 15, 2010

Jan 15, 2010

Sjálfvirk endurnýjun minnkar hættu á lokun

Fyrir kemur að fólk og fyrirtæki missa lénin sín vegna þess að gleymst hefur að greiða árgjaldið til ISNIC, sem er kr. 7.982 m.vsk.

ISNIC-kerfið sendir tengiliðum léna ábendingar og aðvaranir í tölvupósti, og póstleggur tilkynningu um eyðingu léns. Því er nauðsynlegt að upplýsingar lénsins í rétthafaskrá (Whois) séu réttar. Það er á ábyrgð rétthafa lénsins að svo sé.

Innheimta ISNIC hvetur rétthafa léna til nýta sér sjálfvirka endurnýjun, sem finna má á vefsvæði notenda e. innskráningu. Sjálfvirk endurnýjun minnkar líkurnar á lokun lénsins vegna greiðslufalls, og þar með eyðingu þess eftir 60 daga, um leið og þjónustan sparar mikla vinnu við umsýslu og greiðslu reikninga. Notkun greiðslukorta er mjög örugg á vef ISNIC.

Leave a message and we will reply as soon as we can.
1+3:

Message received