Jan 17, 2020

Jan 17, 2020

Pirrandi áminningar frá ISNIC

ISNIC sendir rétthöfum og tengiliðum léna (sjálfvirkt) allskyns ábendingar og aðvaranir með tölvupósti og fylgir þar alþj. reglum og hefðum. Sumir póstarnir, eins og lokunartilkynningin, virðast fara fyrir brjóstið á fáeinum rétthöfum reglulega, sem okkur þykir miður.

Margoft hefur orðalagi tilkynninganna verið breytt, t.d. „gjörið svo vel“ breytt í „vinsamlega“, en eftir stendur orðið „lokatilkynning“ á aðvörun sem send er (og senda skal) rétthafa áður en lén er gert óvirkt í DNS (léni lokað). Orðið „lokaaðvörun“ virtist einnig mjög pirrandi. Lesendur og viðskiptamenn mega gjarnan senda okkur ábendingu um betri orð eða orðasamband sem nota mætti í staðin fyrir orð eins og „lokaaðvörun“, „lokatilkynning“ eða „lokaviðvörun“.

Fátt ef nokkuð er þó meira pirrandi, en þegar lén lokast óforvandis og tölvupósturinn hættir að virka og vefurinn hverfur af öldum internetsins. Þá fyrst fáum við að heyra það og oftar en ekki eitthvað á þessa leið: „Af hverju í andsk. létuð þið mig ekki vita áður!“

Leave a message and we will reply as soon as we can.
1+3:

Message received