Mar 6, 2026
Svikapóstar varðandi endurnýjun léna
Síðustu daga hafa margir rétthafar og tengdir aðilar .is léna fengið pósta um að það þurfi að endurnýja lénin og hlekkur á lendingarsíðu til að endurnýja þau.Þessir póstar, með viðfangsefni á borð við "Endurnýjun léns krafist – Aðgerð nauðsynleg" koma ekki frá ISNIC og eru hluti af svikaherferð. CERT-IS hefur fylgst náið með herferðinni og gert ráðstafanir til að lágmarka skaða af henni í samstarfi við ISNIC og hýsingaraðila.
Ef þú hefur fengið slíkan póst og smellt á hlekkinn og gefið upp upplýsingar þá mælum við með því að hafa samband við CERT-IS og tilkynna það, þannig að hægt sé að gera ráðstafanir fljótt til að koma í veg fyrir tjón.