Apr 27, 2026

Apr 27, 2026

Viðvörun vegna svikapósta frá DMS Iceland

ISNIC varar rétthafa .is léna við tölvupóstum sem hafa borist undanfarna daga þar sem óskað er eftir greiðslu eða endurnýjun á þjónustu hjá aðilanum DMS Iceland.

Margir rétthafar .is léna hafa fengið slíka pósta, en mikilvægt er að árétta að þessir póstar berast ekki frá ISNIC og eru líklega hluti af svikaherferð.

Við hvetjum viðtakendur til að sýna aðgát, smella ekki á tengla í póstunum og gefa hvorki upp persónu- eða greiðsluupplýsingar.

Ef þú hefur fengið slíkan póst mælum við með að tilkynna atvikið til CERT-IS í gegnum gátt á Ísland.is.