23. júl. 2012

23. júl. 2012

Fyrir hvað stendur ISNIC

Skammstöfunin ISNIC stendur fyrir IS Network Information Center, en Internet á Íslandi hf. gengur í daglegu tali undir heitinu ISNIC og meginhlutverk þess er að þjóna höfuðléninu .is (punktur IS). Viðskiptamenn spyrja gjarnan (skiljanlega) fyrir hvað þeir greiða ISNIC einu sinni á ári. Stutta svarið er að lýsa því hvað gerist ef ISNIC-kerfið hættir að þjóna léninu: Þá hættir allur tölvupóstur að berast á netföng (e-mail) lénsins, vefsíðan (www.) sem hvílir á léninu hættir að birtast notendum. Í raun og veru þurrkast tilvera lénsins út af Netinu. 

Meginstarsemi ISNIC felst m.ö.o. í því að reka nafnaþjónustuna (e. Domain Name System) fyrir höfuðlénið .is, en öll lén þurfa á DNS-þjónustu að halda til þess að finnast á Netinu. Lénið (e. domain) er einföld en snjöll framsetning á ip-tölu þess tækis sem hýsir tölupóst og/eða vefsíðu lénsins, og þótt skipt sé um ip-tölu (hýsingu) helst lénið áfram óbreytt. Fyrirtæki eins og ISNIC heita Registry á ensku, en þau stjórna nafnakerfi Netsins á heimsvísu sameiginlega og þar gegnir DNS-kerfið grundvallarhlutverki.

Nafnaþjónusta ISNIC (DNS-þjónustan) vísar öllum fyrirspurnum um tölvupóst eða veffang allra .is-léna eldsnöggt á réttu ip-töluna hvar í heiminum sem hún er staðsett. Þegar lén er flutt milli hýsingaraðila breytist ip-talan án þess að lénið sjálft breytist nokkuð.

Finna má fjölmörg myndbönd á Netinu, t.d. á YouTube, sem útskýra DNS-kerfið ágætlega fyrir leikmönnum. Eitt af þeim heitir DNS Basics, sem tölvunarfræðinemi að nafni Johnson T. Rafallo tók saman í frístundum sínum.

/jpj

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin