12. okt. 2014

12. okt. 2014

Tilkynning vegna lokunar léns

ISNIC hefur lokað lénum sem notuð voru fyrir vefsíðu yfirlýstra hryðjuverkasamtaka. Meirihluti stjórnar ákvað þetta nú síðdegis. Ákvörðunin er reist á grundvelli 2. málsl. 9. gr. reglna ISNIC um lénaskráningu, þar sem fram kemur að rétthafa léns beri að ábyrgjast að notkun léns sé í samræmi við íslensk lög. Lénunum var lokað kl. 18:40, en nokkrir klukkutímar kunna að líða þar til vefir undir lénunum verða óaðgengilegir um allan heim.

Um fordæmalausa aðgerð er að ræða, þar sem ISNIC hefur aldrei fyrr lokað léni vegna innihalds vefjar.

ISNIC.

Uppfært 2014-10-13 kl 13:00 Bætt við tengil á reglur Isnic

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin