26. jan. 2018

26. jan. 2018

Aðalfundur ISNIC 2018

Aðalfundur Internets á Íslandi hf. (ISNIC) verður haldinn föstudaginn 2. febrúar kl. 16:00 í ISNIC-salnum á 18. hæðinni í Höfðatorgi, Reykjavík. Hluthafar, eða fulltrúar þeirra, geta fengið ársreikninginn 2017 sendan með tölvupósti frá og með 26. janúar. Hluthafar ISNIC eru 22 að tölu og nýr hluthafi, sem jafnframt er fyrsti fagfjárfestirinn – Lífeyrissjóður starfsmanna ríkissins (LSR) – bættist í hópinn um áramótin. 

Aðalfundur ISNIC er ávallt haldinn síðdegis á þeim föstudegi, sem liggur næst fyrstu mánaðamótum ársins og hefur félagið oft verið fyrst hlutafélaga til að skila ársreikningi til RSK. ISNIC er smáfyrirtæki með aðeins 8 stöðugildi og um 300 mkr. veltu, en með stórt hlutverk, sem skilgreint er sem einn af mikilvægum innviðum landsins. Hér er átt við reksturinn á höfuðnafnaþjónustunni (e. root DNS service) við landslénið .is.

Vöxtur ISNIC hefur í mörg ár verið jafn og góður, en vöxtur tekna á árinu 2017 reyndist þó aðeins um 1,6%. Lítinn vöxt tekna má að hluta skýra þannig, að um 1/5 hluti tekna ISNIC (og um 1/4 hluti léna) kemur frá útflutningi, en sífellt sterkari króna dregur úr tekjum í krónum talið. Annar hluti skýringarinnar felst í þeirri staðreynd að árgjald .is léna hefur aldrei hækkað, en lækkað þrisvar sinnum á undaförnum 10 árum. Góður árlegur vöxtur internetsins (vöxtur léna) hefur hingað til borið uppi vöxt og þar með hagnað, sem á síðasta ári nam um 1/3 hluta af veltu, eða 97,6 mkr. Endurskoðandi félagsins er KPMG.

JPJ.

 

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin