16. júl. 2018

16. júl. 2018

Yfirlýsing v. vefmælingar Modernus

Yfirlýsing frá Interneti á Íslandi hf. í tilefni gildistöku nýrra laga um persónuvernd vegna vefmælinga Modernus (sem er deild í Internet á Íslandi):

„Vafrakökurnar (e. cookies) sem Modernus dreifir undir nafni "teljari.is" til notenda vefja, sem eru í vefmælingu hjá Modernus, innihalda engin persónugreinanleg gögn. Vefir sem kjósa að birta ábendingu um notkun á kökum (teljarakökum) á vef sínum geta því fullyrt að engum persónugreinanlegum upplýsingum sé safnað eða deilt með þriðja aðila, þ.e.a.s. með Modernus.“

Öðru máli kann að gegna um aðrar kökur, sem t.d. geyma upplýsingar um innskráða notendur vefsins og eru Modernus óviðkomandi.

Reykjavík, 16. júlí 2018.

Jens Pétur Jensen, framkv.stj. Internets á Íslandi hf.

Skildu eftir skilaboð og við munum hafa samband næsta virka dag.
1+3:

Skilaboð móttekin