Í dag náðist merkilegur áfangi í sögu ISNIC þegar fjöldi skráðra .is léna fór yfir 100.000. Um er að ræða tímamót í sögu félagsins, sem endurspeglar sögu lénaskráningar á Íslandi og spannar um fjóra áratugi.
Frá upphafi hefur .is lénið gegnt lykilhlutverki internetnotkun Íslendinga. Fyrirtæki, opinberar stofnanir og einstaklingar hafa frá upphafi kosið að nota .is lén til að byggja upp traust og auka sýnileika á netinu.
Árangurinn er til marks um traust almennings til .is léna, sem endurspegla öryggi, áreiðanleika og skýra tengingu við Ísland. ISNIC hefur lagt ríka áherslu á gagnsæi og jafnræði í skráningu léna, sem hefur stuðlað að stöðugleika og sterkri stöðu .is innanlands, sem og á alþjóðavísu.
ISNIC mun áfram vinna að því að efla íslenskt netsamfélag, styðja við örugga og ábyrga notkun léna og tryggja að .is lénið verði áfram fyrsti kostur fyrir þá sem vilja tengja starfsemi sína við Ísland á netinu.
Starfsfólk og stjórn ISNIC þakkar viðskiptavinum og rétthöfum .is léna kærlega fyrir traustið og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs í framtíðinni.
Þór Jensen,
Framkvæmdastjóri