Atburðaskrá ➜
9. júl. 2026
➜ Seinkun á uppfærslum á .is í dag
9. júl. 2026
Seinkun á uppfærslum á .is í dag
Vegna villu við hugbúnaðaruppfærslu í dag þá voru engar breytingar á .is léninu birtar á milli kl. 10:30-13:39. Undir venjulegum kringumstæðum þá eru breytingar birtar með 20 mín. millibili.
Breytingar eins og stofnun, lokun og breytingar á nafnaþjónum voru því ekki sýnilegar, en allir nafnaþjónar .is svöruðu eðlilega á þessu tímabili.