Fréttir ➜
10. sep. 2026
➜ Prófun á varasambandi ISNIC 16. september
10. sep. 2026
Prófun á varasambandi ISNIC 16. september
Aðfaranótt 16. september nk. mun fara fram prófun á varanetsambandi ISNIC. Verða aðalsambönd ISNIC þá óvirkjuð og umferð mun eingöngu verða yfir varasamband, sem er um gervihnetti.
Prófun mun hefjast kl. 01:00 og standa til kl. 02:00. Eitt af því sem verið er að prófa er hversu lengi netumferð er að aðlaga sig og færast til og frá varasambandinu, þannig að von er á einhverjum truflunum þegar prófun hefst og eftir að henni líkur. Hversu mikil áhrif verða er eitt af því sem er verið að prófa.