Þann 25. september nk. kl. 17:00-18:00 mun ISNIC aftur gera próf á varasambandi yfir gervihnött.
Nauðsynlegt þykir að gera þetta próf aftur til að greina ákveðið vandamál sem uppgötvaðist við prófanir síðast.
Ekki er gert ráð fyrir neinum truflunum fyrir notendur innanlands, en notendur utan Íslands munu verða varir við nokkra mínútna sambandsleysi við þjónustur ISNIC við upphaf og lok prófanna. Ekki verða nein áhrif á nafnaþjónustu .is