2. okt. 2026
Bilun í aukaþjónustunni DNS hýsing ISNIC
Bilun varð í DNS hýsingu ISNIC í dag kl. 10:16 við öryggisuppfærslu á netþjónum.
DNS hýsing ISNIC er einföld aukaþjónusta fyrir viðskiptavini sem vilja tengja .is lén við vefsíður og tölvupóst.
Ný útgáfa hugbúnaðarins reyndist ekki samhæfð eldri útgáfu og vegna mistaka við uppfærsluna hurfu upplýsingar um öll hýst lén af nafnaþjónunum. Því þurfti að sækja upplýsingarnar aftur frá upprunanafnaþjóni.
Bilunin er nú yfirstaðin og öll lén hafa verið endurheimt á nafnaþjónunum. Þjónustan er því komin í eðlilegt horf.