7. okt. 2026
Prófun á varasambandi gekk vel
Í september sl. gerði ISNIC prófanir á varanetsambandi sínu yfir gervihnött.
Þann 16. september á milli 01:00-02:00 var utanlandssamband flutt af ljósleiðurum yfir á gervihnattasamband og ýmsar mælingar gerðar á meðan. Prófunin tókst vel, en þó voru þjónustuliðir sem höguðu sér ekki rétt og því var ákveðið að gera annað próf og skoða þá liði sérstaklega.
25. september á milli kl. 17:00-18:00 var prófið endurtekið og voru tæknimenn frá PCH þá með í ráðum. Sú prófun gekk vel og uppgötvaðist orsökin fyrir því vandamáli sem við sáum við fyrri prófun.
Varanetsamband yfir gervihnött er hugsað sem neyðarsamband ef allir sæstrengir til og frá Íslandi yrðu óvirkir og hefur prófun leitt í ljós að áhrif á daglegan rekstur yrðu lítil sem engin.