22. okt. 2026
Öryggisveikleikar í PHP
Tveir alvarlegir veikleikar fundust í forritunarmálinu PHP sem gerðu ógnaraðilum kleift að fjarkeyra kóða, eins og CERT-IS greinir frá í frétt þeirra um málið.
Í gær var slökkt á þeim opinberu þjónustum ISNIC sem nota PHP, þar á meðal vefsíðu ISNIC. Þessar þjónustur voru teknar niður áður en lagfæring var gefin út vegna vísbendinga um að þá hafi tilraunir til að nýta veikleikann nú þegar sést úti í heimi.
Allar þjónustur ISNIC voru virkjaðar á ný eftir að PHP hafði verið uppfært í örugga útgáfu á öllum kerfum, klukkan 14:12.
Öryggisveikleikinn átti ekki við nafnaþjónustu .is sem varð ekki fyrir neinum áhrifum vegna þessa aðgerða.