Sep 2, 2025
Viðskiptavinir beðnir um að endurskrá greiðslukort
ISNIC hefur nýlega skipt um greiðslumiðlun til að tryggja öruggari og skilvirkari greiðslulausnir. Því biðjum við viðskiptavini um að skrá sig inn á Mínar síður á isnic.is og endurskrá greiðslukortaupplýsingarnar sínar. Ferlið tekur aðeins örfáar mínútur og tryggir að sjálfvirk endurnýjun léna haldist ótrufluð.
Leiðbeiningar um hvernig á að uppfæra kortaupplýsingar
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn. Vinsamlegast hafið samband við þjónustudeild ISNIC ef spurningar vakna.
Kær kveðja,
Starfsfólk ISNIC